Tasar Teal – Arte
45.900 kr. rúlluverð
Tasar er innblásið af ekta silki. Fallegt í einfaldleika sínum, með fíngerðum ójöfnum silkivefnaðar. Þessi náttúrulega vara leiðir alltaf af sér ríkulega, litsterka tóna án þess að vera yfirþyrmandi. Tasar kemur í 11 litum. Þessi útgáfa er í sæblágrænum lit.
Þetta veggfóður má hengja upp á tvo vegu: Annars vegar frjálst og hins vegar þannig að þræðirnir í mynstrinu passa saman þvert á veggfóðurslengjurnar á veggnum. Ef hið seinna er valið þá þarf að gera ráð fyrir því aukalega við pöntun en mynstur endurtekur sig á 90 cm fresti. Það verður því aðeins meiri afskurður með þeirri aðferð.
Tasar er vínilveggfóður á pappírsbaki. Veggfóðrið er mjög þvottþolið og auðvelt að ná því af veggnum seinna meir. Athugið að mælt er með að setja límið á bakhlið veggfóðurs, ekki beint á vegginn. Þrífið límbletti af með hreinu vatni og mjúkum svampi ÁÐUR en límið þornar. Lesið leiðbeiningar vel eða fáið fagmann í verkið.
Í boði sem biðpöntun






















































































































Aquatic Life, Shadows - Rebel Walls
Furada, Teal - Rebel Walls
Leopard Walk, Safari on Taupe - Cole & Son
Lana Espresso - Arte
SX183 alhliða listi
Alva, Beige - Sandberg
Pine Mural, Beige - Sandberg
Montagna Cocoa - Arte
Tulle Pine - Arte
Peaseblossom, Chalk on Duck Egg - Cole & Son
Ivy, Green - Sandberg