Tasar Silver Sand – Arte
43.229 kr. rúlluverð
Tasar er innblásið af ekta silki. Fallegt í einfaldleika sínum, með fíngerðum ójöfnum silkivefnaðar. Þessi náttúrulega vara leiðir alltaf af sér ríkulega, litsterka tóna án þess að vera yfirþyrmandi. Tasar kemur í 11 litum. Þessi útgáfa er í silfurdröppuðum lit.
Þetta veggfóður má hengja upp á tvo vegu: Annars vegar frjálst og hins vegar þannig að þræðirnir í mynstrinu passa saman þvert á veggfóðurslengjurnar á veggnum. Ef hið seinna er valið þá þarf að gera ráð fyrir því aukalega við pöntun en mynstur endurtekur sig á 90 cm fresti. Það verður því aðeins meiri afskurður með þeirri aðferð.
Tasar er vínilveggfóður á pappírsbaki. Veggfóðrið er mjög þvottþolið og auðvelt að ná því af veggnum seinna meir. Athugið að mælt er með að setja límið á bakhlið veggfóðurs, ekki beint á vegginn. Þrífið límbletti af með hreinu vatni og mjúkum svampi ÁÐUR en límið þornar. Lesið leiðbeiningar vel eða fáið fagmann í verkið.
Í boði sem biðpöntun






















































































































Hagtorn - Boråstapeter
Rose Garden - Boråstapeter
Manchas Umber - Arte
Kvarnholmen - Boråstapeter
Beata Moss Green - Sandberg
Spartlspaði fyrir skaft – Friess, tvíhentur 1000mm
Tunis, Rust - Rebel Walls
Beata Graphite - Sandberg
Tree of Life, Honey - Sandberg
Pixie Shore, Mint - Rebel Walls
Slottsteatern - Boråstapeter
Rajapur Flock, Hyacinth Blue & White - Cole & Son
Terre de Lin Poivre Blanc - Arte