St Johns Border, Sussex Rush – Morris & Co
20.359 kr. rúlluverð
Enski fjöllistamaðurinn William Morris, sem var í fararbroddi í list- og handíðahreyfingunni (Arts and Crafts) á 19. öld, er sérstaklega þekktur fyrir veggfóðurshönnun sína. Áherslur hans voru á náttúruleg form og lífræna hönnun fyrir almenning (fremur en aðalinn), með stílfærðum blómum, plöntum, fuglum og fleiri náttúrumótífum. Þessi mikli hugsjónamaður skildi eftir sig um 50 mynstur sem höfðu mikil áhrif á innanhússhönnun almennt, t.d. gætir áhrifa hans greinilega í Art Nouveau stílnum í byggingar-, nytja- og málaralist á 20. öld. Fingraför Morris eru greinileg í mynsturgerð enn þann dag í dag, enda hefur hann oft verið nefndur faðir veggfóðursins.
Morris & Co. X The Huntington – The Unfinished Works, er einstök hönnunarlína sem byggir á skissum William Morris og listræns stjórnanda hans, John Henry Dearle. Þessi mynstur hafa nú verið endurlífguð og fullgerð í samstarfi við Huntington Library, Art Museum og Botanical Gardens í Kaliforníu.
St. Johns Border er formlegt mynstur af fléttuðum vínvið sem upphaflega var hugsað í steindan kirkjuglugga. Þetta kunnuglega mynstur hannaði Duncan Dearle (sonur J. H. Dearle, helsta samstarfsmanns Morris) sem ramma í kringum mynd af Jóhannesi skírara. Nú hefur mynstrið verið endurskapað í glæsilegum veggfóðursborða.
Athugið að mælt er með að setja límið á bakhlið veggfóðurs, ekki beint á vegginn. Þrífið límbletti af með hreinu vatni og mjúkum svampi ÁÐUR en límið þornar. Lesið leiðbeiningar vel eða fáið fagmann í verkið.
Í boði sem biðpöntun














































Biseau Gold Beige - Arte
R17 rósetta
Nelson Sapphire - Arte
Canvas Dusk - Boråstapeter
Polka Stripe - Boråstapeter
Vega - Boråstapeter
Facet Pigeon - Arte
Kvarnholmen - Boråstapeter
Alba - Boråstapeter
Bokskog, Garden Green - Sandberg
Mimi - Boråstapeter
P8030D horn
Talavera - Cole & Son
Alba - Boråstapeter
R27 rósetta
R76 rósetta
Tullgarn - Boråstapeter
Dagmar - Boråstapeter
Dahlia Garden - Boråstapeter
Canvas Christal - Boråstapeter