Scrolling Tulip, Woad/Thyme – Morris & Co
41.759 kr. rúlluverð
Enski fjöllistamaðurinn William Morris, sem var í fararbroddi í list- og handíðahreyfingunni (Arts and Crafts) á 19. öld, er sérstaklega þekktur fyrir veggfóðurshönnun sína. Áherslur hans voru á náttúruleg form og lífræna hönnun fyrir almenning (fremur en aðalinn), með stílfærðum blómum, plöntum, fuglum og fleiri náttúrumótífum. Þessi mikli hugsjónamaður skildi eftir sig um 50 mynstur sem höfðu mikil áhrif á innanhússhönnun almennt, t.d. gætir áhrifa hans greinilega í Art Nouveau stílnum í byggingar-, nytja- og málaralist á 20. öld. Fingraför Morris eru greinileg í mynsturgerð enn þann dag í dag, enda hefur hann oft verið nefndur faðir veggfóðursins.
Morris & Co. X The Huntington – The Unfinished Works, er einstök hönnunarlína sem byggir á skissum William Morris og listræns stjórnanda hans, John Henry Dearle. Þessi mynstur hafa nú verið endurlífguð og fullgerð í samstarfi við Huntington Library, Art Museum og Botanical Gardens í Kaliforníu.
Mynstrið Scrolling Tulip var upphaflega ætlað á gólfteppi. Nú hefur það verið fínpússað af vandvirkni en fær á sama tíma að halda sínum sérstæðu formum. Tignarleg flétta túlípana og súlublómablaða er dæmigerð fyrir handverk Morris og skapar ryþmískt bylgjandi mynstur sem passar fullkomlega á veggi. Scrolling Tulip er sérlega glæsilegt og litfagurt mynstur.
Athugið að mælt er með að setja límið á bakhlið veggfóðurs, ekki beint á vegginn. Þrífið límbletti af með hreinu vatni og mjúkum svampi ÁÐUR en límið þornar. Lesið leiðbeiningar vel eða fáið fagmann í verkið.
Í boði sem biðpöntun














































P3020A horn
Lignes Straw - Arte
Kefli - Purdy, Marathon Jumbo 11cm 2stk
Aspero Malt - Arte
Gillis, Midnight Blue - Sandberg
Stella - Boråstapeter
Geranium - Cole & Son
Stig Lindberg Melodi - Boråstapeter
Affinity - Omexco
Fairies - Boråstapeter
Sommarslöja - Boråstapeter
Betty - Boråstapeter
Puzzle Blue Emerald - Arte
Gocken Jobs Ros och Lilja - Boråstapeter
Lin Gris Brouillard - Arte
Gunnebo - Boråstapeter
Plastinnlegg - Purdy, fyrir 19L fötu 3stk
Confident - Omexco
Pandan 34105 - Arte
Refinement - Omexco
Hanna Werning Hoppmosse - Boråstapeter
Svea - Boråstapeter
CB502 loftalisti
Tintura Olive - Arte