Récolte des Fleurs Sunset Gold – Arte
346.722 kr.
Frá 14. til 18. aldar voru kastalar og herragarðar skreyttir með stórkostlegum veggteppum. Þessi handofnu listaverk sýndu ekki aðeins goðsagnakennda atburði heldur einnig daglegt líf meðal yfirstéttarinnar. Þau færðu hlýju og liti í glæsilega salina og þjónuðu oft sem hrífandi umræðuefni fyrir gesti. Les Tapisseries er óður til þessara íburðarmiklu veggteppa. Sem framlenging af Décors & Panoramiques línunni frá Arte birtast hér tíu einstaklega vönduð veggfóður sem má ýmist kalla veggmyndir eða heilmyndir. Hver hönnun fyrir sig er innblásin af klassískum, aldagömlum veggteppum en hafa verið endurvakin og endurhugsuð með hliðsjón af sjónarmiðum samtímans.
Heilmyndin Récolte des Fleurs, sem hönnuð er eftir fornu Beauvais veggteppi, lýsir líflegu og glaðværu sögusviði. Blómatínslufólk fagnar lífinu með smitandi orku sem hreinlega geislar út frá myndinni. Verkið, sem virðist unnið á bakgrunn úr skinni eða bókfelli, glóir eins og dýrmætur gripur sem hefur staðist tímans tönn með reisn. Récolte des Fleurs er heilmynd í stærðinni 400 cm x 300 cm, sem alls gera 12 m2. Hægt er að endurtaka mynstrið með því að leggja tvær eða fleiri heilmyndir hlið við hlið.
Récolte des Fleurs veggfóðrið er úr blöndu af pappír og gervitrefjum (non-woven) sem þenst ekki út í límingu og er auðvelt að ná af veggnum seinna meir. Athugið að mælt er með að setja límið á vegginn. Lesið leiðbeiningar vel eða fáið fagmann í verkið – sem eindregið er mælt með. Einnig má benda á myndbönd á heimasíðunni.
Í boði sem biðpöntun

Lin Stone - Arte
Cabinet Of Curios, Sapphire - Rebel Walls
Lin Normandie Paillotte - Arte
Squirrel Mountain, Pink - Rebel Walls
Rost Gold - Sandberg
Pushkin, Stone - Cole & Son
Petit Flora Soft Pink - Rebel Walls
Casalian Evergreen - Arte
Dripping Rainbow, Beach - Rebel Walls
Spruce Forest Blue - Rebel Walls
Stone Wall, Black - Rebel Walls
Lin Normandie Pisé - Arte
Hexagon Leaves - Rebel Walls
Cygne, Noir - Rebel Walls
Vintage Flora Ebony - Rebel Walls
Bellini, Grey - Cole & Son
Terre de Lin Médicis - Arte
Maja Pastel - Sandberg
Bumblebee Sand - Rebel Walls
CB521 loftalisti
Pure Lodden, Ivory/Linen - Morris & Co
Jaipur, Sage - Rebel Walls
Lin Abaca - Arte
CB523 loftalisti