Rattan – opinn reyrvefur 90×100 cm
13.890 kr.
Spanskreyr eða reyr (rattan) er efni unnið úr mörgum tegundum pálmatrjáa sem vaxa í hitabelti Afríku, Asíu og Eyjaálfu. Reyr er níðsterkur og hefur í gegnum tíðina verið mest notaður í körfur og fléttaður í vef fyrir stóla. Opinn reyrvefur er misstórgerður, þessi er “opinn” eða með um sentimetravíðum götum. Reyrvefinn má nota á ýmsa vegu, í raun ræður hugmyndaflugið för. Sem dæmi má nefna í skápahurðir, skilrúm, lampaskerma, hillur, bakka og fleira. Við mælum með sérstyrktri tegund til stólasetugerðar.
Reyrinn er einfaldur í uppsetningu. Mikilvægast er að leggja hann í bleyti, í a.m.k. 2 klst. Þá mýkist hann og slaknar aðeins og verður auðveldur að meðhöndla. Reyrinn er síðan heftaður á flötinn, t.d. á bak hurðaramma. Hann gæti virst svolítið ójafn í fyrstu en hann strekkist þegar hann þornar og jafnast út.
Opinn reyrvefur (rattan), er seldur í metramáli hér í vefverslun. Breidd er 90 cm. Hægt er að kaupa eftir nákvæmu máli í versluninni Dalvegi, t.d. 1.8 m, en þá skal senda pöntun á serefni@serefni.is




Mischievous Tigers - Rebel Walls
Blooming Park Dark - Rebel Walls
Canvas Urban - Arte
Tropical Bellewood, Night - Rebel Walls
Fairy Tale Castle Graphite - Rebel Walls
Swan Lake - Rebel Walls
Stairway Graffiti, Swallow - Rebel Walls
Madagascar, Teal - Rebel Walls
Segulspartl – Smarter Surfaces™
Arlon, Teal - Rebel Walls
We Are Robots - Rebel Walls
Gothic Arches Grey - Rebel Walls
Stairway Graffiti - Rebel Walls
Butterflies, Misty Blue - Sandberg
Tintura Indigo - Arte
Star Galaxy - Rebel Walls
Vintage Flora Pastel - Rebel Walls
Biseau Gold Beige - Arte
Mystery Lake Vintage - Rebel Walls
Jon Indigo Blue - Sandberg
Zen Mural, Grey - Sandberg
Retro Geometry - Rebel Walls
Siv, Burgundy - Sandberg
Giraffe's Stroll - Rebel Walls
Plastinnlegg - Friess, fyrir bakka 30x35cm
Swaying Reed - Rebel Walls
Milo, Spring Green - Sandberg
Solveig, Midnight Blue - Sandberg
Cabinet Of Curios, Raw - Rebel Walls
Pallaskrúbbur - tré, 22cm
Segulmálning - Smarter Surfaces™
Scandinavian Bellewood, Grey - Rebel Walls
The Path Lightblue - Rebel Walls
Hedda, Sandstone - Sandberg