Rattan Eclipse – Arte
72.379 kr. lengdarmetraverð
Rattan er handofinn vefur úr náttúrulegum trefjum úr hitabeltinu. Kunnuglegt vefmynstrið skapar tímalaust yfirbragð og það myndast skemmtilegur leikur ljóss og skugga á veggnum. Þessi áhrif eru mismikil eftir bakgrunninum, en hann má fá bæði kremaðan og svartan (hér). Dæmigert er að handofin náttúruefni sýna smávegis litablæbrigði og jafnvel örlítið ójafna áferð – sem er í raun einkennandi fyrir náttúrulega fegurð.
Rattan er með baki úr blöndu af pappír og gervitrefjum (non-woven) sem þenst ekki út í límingu og er auðvelt að ná því af veggnum seinna meir. Athugið að mælt er með að setja límið bæði á vegg og á bakhlið veggfóðurs. Blautt/rakt lím má strjúka létt af framhliðinni með svampi við upphengingu. Lesið leiðbeiningar vel eða fáið fagmann í verkið. ATH. Þetta veggfóður er selt í lengdarmetrum, ekki stöðluðum rúllum.
Í boði sem biðpöntun






































































Vintage Rose - Boråstapeter
Vera - Boråstapeter
Vintage Rose - Boråstapeter
Vega - Boråstapeter
Rainforest Squiggle - Cole & Son
Alba - Boråstapeter
Sophia - Boråstapeter
Biseau Gold Beige - Arte
Benjamin Sage Green - Sandberg
Picnic Check - Boråstapeter
Alice's Garden - Rebel Walls
White Linen - Boråstapeter
Tekkolía
Sabal Silver - Arte