Ranold, Beige – Sandberg
20.549 kr. rúlluverð
Veggfóðurslínan Sandberg Heritage er sett fram í ár – 2026 – til að fagna hálfri öld af sænskri veggfóðursgerð, með fallegu handverki og mynsturlist. Þar eru ýmis ástsæl og klassísk mynstur dregin fram úr hillunum og endurtúlkuð fyrir samtímaheimili en jafnframt varðveita þau kjarna tímalausrar skandinavískrar hönnunar. Hvert mynstur segir sína sögu. Þau eru tjáning á listfengi, gleði og umhyggju sem hafa einkennt Sandberg í 50 ár.
Ranold hefur lengi verið framleitt hjá Sandberg sem hefðbundið prentveggfóður en kemur nú á stærri skala og hefur fengið textíl yfirbragð. Þetta tartan-mynstur geislar af sjálfstrausti og klæðilegum stíl. Klassískt, köflótt veggfóður í sérlega fallegum litasamsetningum og góðu jafnvægi.
Í boði sem biðpöntun















































Lin Normandie Scarabée - Arte
Selva - Omexco
Lin Normandie Cimento - Arte
Lin Bleu de Toi - Arte
Terre de Lin Poudre - Arte
Kefli - Friess, Texron 15cm
Lin Cimento - Arte
Savuti, Blush & Sky Blue on Duck Egg - Cole & Son
Sibylla - Boråstapeter
Morängen, Pastel - Sandberg
Lin Stone - Arte
Lin Most White - Arte
Canvas Linen - Arte