Ramage Blue Straw – Arte
48.644 kr. lengdarmetraverð
Frá 14. til 18. aldar voru kastalar og herragarðar skreyttir með stórkostlegum veggteppum. Þessi handofnu listaverk sýndu ekki aðeins goðsagnakennda atburði heldur einnig daglegt líf meðal yfirstéttarinnar. Þau færðu hlýju og liti í glæsilega salina og þjónuðu oft sem hrífandi umræðuefni fyrir gesti. Les Tapisseries er óður til þessara íburðarmiklu veggteppa. Sem framlenging af Décors & Panoramiques línunni frá Arte birtast hér tíu einstaklega vönduð veggfóður sem má ýmist kalla veggmyndir eða heilmyndir. Hver hönnun fyrir sig er innblásin af klassískum, aldagömlum veggteppum en hafa verið endurvakin og endurhugsuð með hliðsjón af sjónarmiðum samtímans.
Í textílheiminum lýsir orðið ramage trjágreinum og blómum – sem er viðeigandi heiti á þessari veggklæðningu í japönskum teiknistíl þar sem paradísarfuglar spóka sig í gróskumiklum laufgróðri. Hágæða íofna textílmyndin (fr. jacquard) gefur Ramage klassískan glæsileika sem endist yfir tíð og tíma.
Ramage veggfóðrið er textíll með baki úr blöndu af pappír og gervitrefjum (non-woven) sem þenst ekki út í límingu og er auðvelt að ná því af veggnum seinna meir. Athugið að mælt er með að setja límið á vegginn. Lesið leiðbeiningar vel eða fáið fagmann í verkið – sem eindregið er mælt með. Einnig má benda á myndbönd á heimasíðunni.
Í boði sem biðpöntun

Lilac, Lilac & Heath Grey on White - Cole & Son
Valv Gray - Sandberg
Chanderi Pimento - Arte
Solliden, Blue - Sandberg
Sombra Dove - Arte
Infini Teal - Arte
Kefli - Friess, MintTex 10cm/16mm, þykk
Marsh Blue Ash - Arte
Cuadro Charcoal - Arte
Itaya Eggshell - Arte
Vinnie Linen - Sandberg
Infini Sandstone - Arte
Emil, Garden Green - Sandberg
Pandan Blue Stone - Arte
Veggfóðursbursti - Friess, 30 cm
Piante Indian Red - Arte
Pimpernel, Bayleaf/Manilla - Morris & Co
Leopard Walk, Linen on Soft Olive - Cole & Son
Petals Sand - Rebel Walls
Papillon Pale Aqua - Arte
Lin Cimento - Arte