Puzzle Blue Emerald – Arte
41.200 kr. lengdarmetraverð
Puzzle er stórglæsilegt veggfóður úr náttúrulegum sísalvef. Mynstrin eru rúmfræðileg, litrík og óregluleg með bæði beinum línum og bognum formum. Þó bútasaumurinn virki óreglulegur passa púslustykkin samt fagurlega saman. Ósvikið listaverk á vegg! Litir: Svartur, blár, blágrænn, kopar og silfur tónar.
Puzzle sísalvefurinn er með baki úr blöndu af pappír og gervitrefjum (non-woven) sem þenst ekki út í límingu og er auðvelt að ná því af veggnum seinna meir. Athugið að mælt er með að setja límið bæði á vegg og á bakhlið veggfóðurs. Blautt/rakt lím má strjúka létt af framhliðinni með svampi við upphengingu. Lesið leiðbeiningar vel eða fáið fagmann í verkið. Þetta veggfóður er selt í lengdarmetrum, ekki stöðluðum rúllum.
Í boði sem biðpöntun



















Nongo Blue Orange - Arte
Franges Khaki - Arte
P8030C horn
Canvas Graphite - Boråstapeter
Wild Forest Mural - Boråstapeter
Kefli - Decomax Miniroller, 10cm 2 stk
Nongo Washed White - Arte
Tela Alabaster - Arte
Canvas Dew - Arte
Chanderi Argile - Arte
Emmie, Misty Blue - Sandberg