Poona Cinnamon – Arte
48.230 kr. rúlluverð
Á Indlandi kemur sumarið ekki hljóðlega. Það springur út með fullum krafti; heimurinn verður baðaður í gullnu ljósi, ilmandi af þroskuðum ávöxtum og hlýrri jörð, á meðan loftið glitrar af hita. Í þessu loftslagi verða þægindi að list og rétti textíllinn er meira en munaður. Hann er nauðsyn sem mýkir hitann og færir fegurð, áferð og vellíðan inn í daglegt líf. Hör hefur verið trúr förunautur í slíku loftslagi um aldir. Hann andar, kælir og er þægilegur – jafnvel í stafalogni.
Poona veggfóðrið er nefnt eftir indversku borginni Pune (áður Poona) þar sem hin stórkostlega Aga Khan höll stendur. Poona sækir innblástur í tignarlegu bogana í höllinni og er prentað á bakgrunn með afar trúverðugri, jafnofinni höráferð.
Kerala er vínilveggfóður á pappírsbaki. Það er mjög þvottþolið og auðvelt að ná af veggnum seinna meir. Athugið að mælt er með að setja límið á bakhlið veggfóðursins eða setja límið á vegginn en þá þarf að úða bakhliðina fyrst með vatni til að gera hana raka. Lesið leiðbeiningar vel eða fáið fagmann í verkið.
Í boði sem biðpöntun












Magnolia - Cole & Son
Woodbell & Anemone, Rose/Sage - Morris & Co
Capas 34302 - Arte
Gioco Moss - Arte
Pandan 34105 - Arte
CB511 loftalisti
Cesta - Omexco
Sandra, Sandstone - Sandberg
Verdure Blue Mint - Arte
Vera - Boråstapeter
Diana - Boråstapeter
D340 framlenging á gerefti
Frutto Proibito Print Room Blue & Magenta on Metallic Gold - Cole & Son
Wandle, Indigo/Madder - Morris & Co
Bloom, Midnight Blue - Sandberg