Pimpernel Woad – Morris & Co
39.168 kr. rúlluverð
Enski fjöllistamaðurinn William Morris, sem var í fararbroddi í list- og handíðahreyfingunni (Arts and Crafts) á 19. öld, er sérstaklega þekktur fyrir veggfóðurshönnun sína. Áherslur hans voru á náttúruleg form og lífræna hönnun í daglegu lífi almennings, með stílfærðum blómum, plöntum, fuglum, ávöxtum og fleiri náttúrumótífum. Þessi mikli hugsjónamaður skildi eftir sig um 50 mynstur sem höfðu mikil áhrif á innanhússhönnun almennt, t.d. gætir áhrifa hans greinilega í Art Nouveau, sem er beinn forveri Art Deco stílsins. Fingraför Morris eru greinileg í mynsturgerð enn þann dag í dag enda hefur hann oft verið nefndur faðir veggfóðursins.
Iðandi ryþmar og flókin uppbygging mynstursins Pimpernel gerðu það að verkum að Morris valdi einmitt þetta veggfóður til að skreyta borðastofuna sína í Kelmscott House. Veggfóðrið var hannað 1876 og er yfirborðsprentað þannig að finna má fyrir ójöfnunum í þrykkinu við snertingu. Það er fáanlegt í fjórum ljúfum en þó sterkum litasamsetningum: Weld/Leaf Green, Woad, Sunflower/Pink og Cochineal Pink.
Pimpernel er úr blöndu af pappír og gervitrefjum (non-woven) sem þenst ekki út í límingu og er auðvelt að ná af veggnum seinna meir. Athugið að mælt er með að setja límið á vegginn. Þrífið límbletti af með hreinu vatni og mjúkum svampi ÁÐUR en límið þornar. Lesið leiðbeiningar vel eða fáið fagmann í verkið.
Í boði sem biðpöntun

























Lignes Olive - Arte
Nautilus, Stone & Linen - Cole & Son
Petite Fleur, Honey Citrine - Cole & Son
Puro Granite - Arte
Yard - Omexco
Eri Violet Gold - Arte
Liselund, Hazel - Sandberg
Tasar White Smoke - Arte
Musa Eucalyptus - Arte
Jennie Spring Green - Sandberg
Alicia - Boråstapeter
Tasar Deep Lagoon - Arte
Pine, Green - Sandberg
Lin Midnight Blue - Arte
Senzo Spot, Charcoal & Metallic Gold on Teal - Cole & Son
Absence of Roses Moiré - Cole & Son
Kefli - Purdy, keflasett
Granville Blue Stone - Arte
Kefli - Friess, Texron 25cm
Grow Green - Rebel Walls
Arrow Shadow - Arte
Hand-Painted Leopard - Cole & Son
Engla Sandstone - Sandberg
Pensill - Purdy, XL Elite Sprig 50mm
Éclat Aloe - Arte
Zen Mural, Indigo Blue - Sandberg
Kefli - Friess, Malerstreif 18cm
Khulu Vases, Multi Greens on Pale Cream - Cole & Son
Éclat Smoke - Arte
Terre de Lin Mushroom - Arte
Sigfrid Indigo Blue - Sandberg
Flax Fiber - Boråstapeter