Pimpernel Weld/Leaf Green – Morris & Co
39.168 kr. rúlluverð
Enski fjöllistamaðurinn William Morris, sem var í fararbroddi í list- og handíðahreyfingunni (Arts and Crafts) á 19. öld, er sérstaklega þekktur fyrir veggfóðurshönnun sína. Áherslur hans voru á náttúruleg form og lífræna hönnun í daglegu lífi almennings, með stílfærðum blómum, plöntum, fuglum, ávöxtum og fleiri náttúrumótífum. Þessi mikli hugsjónamaður skildi eftir sig um 50 mynstur sem höfðu mikil áhrif á innanhússhönnun almennt, t.d. gætir áhrifa hans greinilega í Art Nouveau, sem er beinn forveri Art Deco stílsins. Fingraför Morris eru greinileg í mynsturgerð enn þann dag í dag enda hefur hann oft verið nefndur faðir veggfóðursins.
Iðandi ryþmar og flókin uppbygging mynstursins Pimpernel gerðu það að verkum að Morris valdi einmitt þetta veggfóður til að skreyta borðastofuna sína í Kelmscott House. Veggfóðrið var hannað 1876 og er yfirborðsprentað þannig að finna má fyrir ójöfnunum í þrykkinu við snertingu. Það er fáanlegt í nokkrum ljúfum og fallegum litasamsetningum.
Pimpernel er úr blöndu af pappír og gervitrefjum (non-woven) sem þenst ekki út í límingu og er auðvelt að ná af veggnum seinna meir. Athugið að mælt er með að setja límið á vegginn. Þrífið límbletti af framhlið með hreinu vatni og mjúkum svampi ÁÐUR en límið þornar. Lesið leiðbeiningar vel eða fáið fagmann í verkið.
Í boði sem biðpöntun

























Tasar Bronze - Arte
Simon, Charcoal - Sandberg
Victoria's Garden, Day - Rebel Walls
Turi Gramstad Oliver Astrid - Boråstapeter
PX116 vegglisti
Uccelli Ballet Slipper - Cole & Son
Detour Gold Teal - Arte
Tela Linen - Arte
Emilia Ilke, Pastel - Sandberg
Le Papier Tissé Pistache - Arte
Adelaide Blue - Sandberg
Lin Muscade - Arte
Sunflowers, Yellow - Sandberg
Stig Lindberg Poème d'amour - Boråstapeter
Faded Passion Pastel - Sandberg
Terre de Lin Blush - Arte
P8030D horn
Ben, Emerald - Sandberg