Piante Deep Slate – Arte
35.834 kr. rúlluverð
Sculptura sækir innblástur sinn í hefðbundna gifsvinnu. Gifsræmum var handraðað í mynstur og síðan umbreytt í ótrúlega vínilveggfóðurslínu. Dæmigerð uppbygging gifsins á möskvum, með sprungum og ójöfnum svæðum sjást greinilega. Þetta heillandi veggfóður með sínum óvæntu geómetrísku mynstrum gefur veggjum mildan svip með lit, upphleyptri uppbyggingu og lífrænni áferð. Skuggaleikurinn milli ljóss og myrkurs vekur slétta veggi til lífsins. Í stuttu máli lyftir Sculptura innanhússhönnuninni upp á látlausan hátt án þess að krefjast allrar athyglinnar.
Laufskrúðið á Piante dregur hugann út í ótamda náttúruna. Með tón-í-tón litaáhrifunum helst heildarútlitið friðsælt og gefur veggnum karakter. Ójafnt yfirborðið og leikur ljóss og skugga skapa aukna dýpt og léttleika á vegginn.
Piante er vínilveggfóður á pappírsbaki. Það er mjög þvottþolið og auðvelt að ná af veggnum seinna meir. Athugið að mælt er með að setja límið á bakhlið veggfóðursins eða setja límið á vegginn en þá þarf að úða bakhliðina fyrst með vatni til að gera hana raka. Lesið leiðbeiningar vel eða fáið fagmann í verkið.
Í boði sem biðpöntun































Alnwick - Omexco
Aspero Blue Stone - Arte
Stella Misty Blue - Sandberg
Alma Taupe - Arte
Terre de Lin Rotin - Arte
Petite Fleur, Platinum Matte - Cole & Son
Pensill - Harris Premier, 38mm
Lin Normandie Authentic Rust - Arte
Pensill - Anza, Super Soft Flat 70mm