Peerless – Omexco
13.532 kr. lengdarmetraverð
Intuition línan er samsett úr fjölbreyttu úrvali veggfóðurs úr náttúrutrefjum í sinni hreinustu mynd. Þær eru síðan ofnar saman í mynsturvef. Náttúrutrefjavefur býr yfir fagurfræðilega eðlislægum yfirburðum, veitir áþreifanleg notalegheit og kynnir ferska vídd í hvert rými.
Peerless úr Intuition línunni er stórglæsilegt veggfóður úr náttúrutrefjum. Það er ofið úr seigum raffíaþráðum frá Madagaskar og má lýsa sem fínlegum dansi einfaldleika og endingar. Peerless fæst í sex yndislegum náttúrutónum.
Veggfóður úr náttúrutrefjum er viðkvæmt í uppsetningu. Aldrei leyfa lími eða vatni að komast framan á veggfóðrið. Athugið að límið er sett á vegginn. Lesið leiðbeiningar vel eða fáið fagmann í verkið – sem eindregið er mælt með.
Munur getur verið á lit og útliti veggfóðurs úr náttúrutrefjum eftir lotum og lengjum. Ekki er hægt að tryggja fullkomna litasamsvörun milli sýnishorns í mynsturbók og keyptrar vöru. Það er hluti af fagurfræði náttúruefnanna – fegurðin liggur í ófullkomleikanum.
Við mælum með að bæta um 5 cm við breidd og hæð í pöntun því veggir eru oft skakkir. Lágmarkspöntun er 3 m2.
Í boði sem biðpöntun

































Scrolling Tulip, Woad/Thyme - Morris & Co
Musa Eucalyptus - Arte
Platinum Taupe - Arte
Tintura Moss - Arte
Gillis, Midnight Blue - Sandberg
Tasar Latte - Arte
Henrik, Red - Sandberg
Éclat Mahogany - Arte
Lin Midnight Blue - Arte
Eternal Flower - Boråstapeter
Flamingos - Cole & Son
Motas Sky Blue - Arte