Owen Jones, Forest – Morris & Co
33.224 kr. rúlluverð
Enski fjöllistamaðurinn William Morris, sem var í fararbroddi í list- og handíðahreyfingunni (Arts and Crafts) á 19. öld, er sérstaklega þekktur fyrir veggfóðurshönnun sína. Áherslur hans voru á náttúruleg form og lífræna hönnun í daglegu lífi almennings, með stílfærðum blómum, plöntum, fuglum, ávöxtum og fleiri náttúrumótífum. Þessi mikli hugsjónamaður skildi eftir sig um 50 mynstur sem höfðu mikil áhrif á innanhússhönnun almennt, t.d. gætir áhrifa hans greinilega í Art Nouveau, sem er beinn forveri Art Deco stílsins. Fingraför Morris eru greinileg í mynsturgerð enn þann dag í dag enda hefur hann oft verið nefndur faðir veggfóðursins.
Owen Jones var frægur arkitekt sem stóð framarlega í hönnun og skrautlist á tímum Viktoríu drottningar á 19. öld. Einkennismótíf hans voru stílfærðar sverðliljur, einskonar skjaldarmerki, sem birtist fyrst í í Volume III mynstursafni Morris & Co. Þetta heimsþekkta tígulgrindamynstur kemur hér í dimmgrænum lit.
Athugið að mælt er með að setja límið á bakhlið veggfóðurs, ekki beint á vegginn. Þrífið límbletti af með hreinu vatni og mjúkum svampi ÁÐUR en límið þornar. Lesið leiðbeiningar vel eða fáið fagmann í verkið.
Í boði sem biðpöntun



































































Chanderi Almond - Arte
Alva, Spring Green - Sandberg
Mandu Cumin - Arte
Biseau Grey Forest - Arte
Alice, Ocean Blue - Sandberg
Campo Toffee - Arte
Shards Orange Gold - Arte
Leon, Garden Green - Sandberg
Stravinsky, Metallic Bronze - Cole & Son
Seasonal Woods, Jade - Cole & Son
Pushkin, Stone - Cole & Son
SX162 alhliða listi