Mary Isobel, Russet/Taupe – Morris & Co
35.205 kr. rúlluverð
Enski fjöllistamaðurinn William Morris, sem var í fararbroddi í list- og handíðahreyfingunni (Arts and Crafts) á 19. öld, er sérstaklega þekktur fyrir veggfóðurshönnun sína. Áherslur hans voru á náttúruleg form og lífræna hönnun í daglegu lífi almennings, með stílfærðum blómum, plöntum, fuglum, ávöxtum og fleiri náttúrumótífum. Þessi mikli hugsjónamaður skildi eftir sig um 50 mynstur sem höfðu mikil áhrif á innanhússhönnun almennt, t.d. gætir áhrifa hans greinilega í Art Nouveau, sem er beinn forveri Art Deco stílsins. Fingraför Morris eru greinileg í mynsturgerð enn þann dag í dag enda hefur hann oft verið nefndur faðir veggfóðursins.
Súlublómalauf og blóm bylgjast yfir flötinn á veggfóðrinu Mary Isobel. Það er eitthvað ótrúlega fínlegt og yndislegt við þetta mynstur sem er hannað af John Henry Dearle, nánasta samstarfsmanni Morris. Veggfóðrið byggir á útsaumsmynstri frá um 1890.
Athugið að mælt er með að setja límið á bakhlið veggfóðurs, ekki beint á vegginn. Þrífið límbletti af með hreinu vatni og mjúkum svampi ÁÐUR en límið þornar. Lesið leiðbeiningar vel eða fáið fagmann í verkið.
Í boði sem biðpöntun



































































Efraim, Soft Green- Rebel Walls
Terracotta Linen - Boråstapeter
Opulent Shadows - Rebel Walls
Marble Art - Rebel Walls
Northern Stone - Boråstapeter
Myrten - Boråstapeter
Skaft - Friess, SoftTouch 100-200cm
Chinoiserie Haze, Sand - Rebel Walls
Brick Wall, White - Rebel Walls
Spartlspaði - Purdy, 100 mm
Spartlspaði - Purdy, 150mm
Couture Carousel Windows, Pastel Pearl - Cole & Son
Gocken Jobs Rabarber - Boråstapeter