Rattan – lokaður reyrvefur 90×100 cm
6.100 kr.
Reyr (rattan) er efni unnið úr mörgum tegundum pálmatrjáa sem vaxa í hitabelti Afríku, Asíu og Eyjaálfu. Reyrinn er níðsterkur og hefur í gegnum tíðina verið mest notaður í körfur og fléttaður í vef fyrir stóla. Reyrvefurinn getur verið misstórgerður, þessi er „lokaður“ og frekar fíngerður. Reyrvefinn má nota á ýmsa vegu, í raun ræður hugmyndaflugið för. Sem dæmi má nefna í skápahurðir, skilrúm, lampaskerma, hillur, bakka og fleira.
Reyrinn er einfaldur í uppsetningu. Mikilvægast er að leggja hann í bleyti, í a.m.k. 2 klst. Þá mýkist hann og slaknar aðeins og verður auðveldur að meðhöndla. Reyrinn er síðan heftaður á flötinn, t.d. á bak hurðaramma. Hann gæti virst svolítið ójafn í fyrstu en hann strekkist þegar hann þornar og jafnast út.
Lokaður reyr er seldur í metramáli hér í vefverslun. Breidd 90 cm. Hægt er að kaupa eftir nákvæmara máli, t.d. 1.8 m en þá skal panta í s. 517 0404 (Dalvegur) eða senda á serefni@serefni.is



Toledo, Lemonade - Rebel Walls
Cocktails Pastel - Cole & Son
Pure Sunflower, Parchment/Gold - Morris & Co
Paradise Birds - Boråstapeter
Soho, Slate - Rebel Walls
Pixie Shore, Sky - Rebel Walls
Song Tree Pearl - Rebel Walls
Meadow, Color - Rebel Walls
Fairy Tale Castle Blue - Rebel Walls
Fairy Tale Castle Graphite - Rebel Walls
Cocktails Multi - Cole & Son