Little Explorer Mural – Boråstapeter
37.588 kr.
Hið stórkostlega veggfóður Little Explorer Mural dreifir sér eins og fallegt málverk yfir vegginn. Hér er allur dýraheimurinn undir; allt frá hreindýrum og björnum í norðri til gíraffa á gresjum hitabeltisins, mörgæsa á Suðurskautslandinu og risastórra hvala í heimshöfunum. Sérðu páfuglinn? Og lemúrinn? Það eru mörg smáatriði hér til að ýta undir dagdrauma litlu landkönnuðanna. Sérstaklega hannað af sænska lífsstílsmerkinu Newbie fyrir Boråstapeter.
Little Explorer Mural er heilmynd og kemur í sex 49 cm lengjum. Breidd myndar er 294 cm og hæð 265 cm. Á breiðari veggi en 294 cm er hægt er að bæta annarri heilmynd við til hliðar þannig að skilin passa saman. Við mælum með að bæta um 5 cm við breidd og hæð í pöntun því veggir eru oft skakkir.
ATH. Það tekur um viku frá pöntun að fá þessa heilmynd afgreidda. Pantað alla mánudaga.
Í boði sem biðpöntun
















































Lin Noir de Lune - Arte
Waves Beige - Rebel Walls
Afrika Kingdom, Olive Green & Spring Green on Cream - Cole & Son
Terre de Lin Poivre Blanc - Arte
Tamba Clay - Arte
Rajapur - Cole & Son
Lin Cimento - Arte
Gioco Galet - Arte
Sam Linen - Sandberg
Lin Shitake - Arte
Marsh Ash - Arte
Audrey, Blue - Sandberg
Aspero Blue Stone - Arte
Seasonal Woods, Gold Pearl - Cole & Son
Stig Lindberg Herbarium - Boråstapeter
Malabar - Cole & Son
Woodbell & Anemone, Rose/Sage - Morris & Co
Safari Totem, Ruby & Print Room Blue on Charcoal - Cole & Son