Lignes Stone – Arte
45.900 kr. rúlluverð
Lignes er sérlega glæsilegt veggfóður með textíláferð. Ljósari og dekkri þræðir eru samofnir til að búa til láréttar rendur. Það gefur tilfinningu fyrir dýpt. Litur: Steingrár.
Þetta veggfóður má hengja upp á tvo vegu: Annars vegar frjálst og hins vegar þannig að þræðirnir í mynstrinu passa saman þvert á veggfóðurslengjurnar á veggnum. Ef hið seinna er valið þá þarf að gera ráð fyrir því aukalega við pöntun en mynstur endurtekur sig á 91 cm fresti. Það verður því aðeins meiri afskurður með þeirri aðferð.
Lignes er vínilveggfóður á pappírsbaki. Veggfóðrið er mjög þvottþolið og auðvelt að ná því af veggnum seinna meir. Athugið að mælt er með að setja límið á bakhlið veggfóðurs, ekki beint á vegginn. Þrífið límbletti af með hreinu vatni og mjúkum svampi ÁÐUR en límið þornar. Lesið leiðbeiningar vel eða fáið fagmann í verkið.
Í boði sem biðpöntun






















































































































Alma - Omexco
Narina, Charcoal - Cole & Son
Terre de Lin Zoulou - Arte
Éclat Smoke - Arte
Nelson Chanterelle Grey - Arte
Coral, Garden Green - Sandberg
C362 ljósalisti
Montagna Petal - Arte
Stella Sage Green - Sandberg
Solliden, Blue - Sandberg
Lin Stone - Arte
Granville Beaver Brown - Arte
Hicks' Grand - Cole & Son