Lignes Pearl – Arte
45.900 kr. rúlluverð
Lignes er sérlega glæsilegt veggfóður með textíláferð. Ljósari og dekkri þræðir eru samofnir til að búa til láréttar rendur. Það gefur tilfinningu fyrir dýpt. Litur: Ljósdrappaður.
Þetta veggfóður má hengja upp á tvo vegu: Annars vegar frjálst og hins vegar þannig að þræðirnir í mynstrinu passa saman þvert á veggfóðurslengjurnar á veggnum. Ef hið seinna er valið þá þarf að gera ráð fyrir því aukalega við pöntun en mynstur endurtekur sig á 91 cm fresti. Það verður því aðeins meiri afskurður með þeirri aðferð.
Lignes er vínilveggfóður á pappírsbaki. Veggfóðrið er mjög þvottþolið og auðvelt að ná því af veggnum seinna meir. Athugið að mælt er með að setja límið á bakhlið veggfóðurs, ekki beint á vegginn. Þrífið límbletti af með hreinu vatni og mjúkum svampi ÁÐUR en límið þornar. Lesið leiðbeiningar vel eða fáið fagmann í verkið.
Í boði sem biðpöntun






















































































































Cashmere Tan - Arte
Vintage Rose - Boråstapeter
Olivia, Sage Green - Sandberg
D200 skrauthorn á gerefti
Tela Ginger - Arte
Éclat Rust - Arte
CB523 loftalisti
Casalian Evergreen - Arte
Savuti, Bright Multi on Cream - Cole & Son
Geranium - Cole & Son
Simon, Sandstone - Sandberg