Laura, Blue – Sandberg
7.054 kr. fermetraverð
Villa Como veggfóðurslínan er okkar eigin ferðasaga um hið undurfallega Como-vatn á Ítalíu. Heillandi útsýni og tímalaus fegurð dalsins við rætur Alpanna er einskonar táknmynd menningarauðs og hins ljúfa lífs. Mynstrin í Villa Como línunni sameina gróðurmótíf og grafíska nákvæmni í sveigðum vínviði, litríkum blómum og fallegum regnhlífarfurum sem mynda andstæðu við þráðbeinar rendur. Litapallettan tengist sólhlýjum kalkþvegnum steinhúsum, heiðbláu hafi og grænum ólívulundum.
Laura geislar af friðsælum glæsileika með sínum fíngerðu klifurgreinum og ferska laufvexti sem fangar kjarna vorsins. Mjúk litapalletta og stílhrein hönnun skapa fágaðan og hlýlegan bakgrunn. Hönnun: Sara Bergqvist.
Í boði sem biðpöntun
































































Forest Friends - Boråstapeter
Rambling Rose Emery Blue/Spring Thicket - Morris & Co
Sweet Pea, Cerulean & Sky on White - Cole & Son
Leopard Walk, Soot on Snow - Cole & Son
Alexandra Sandstone - Sandberg
Pimpernel Sunflower/Pink - Morris & Co
Borage Leafy Arbour - Morris & Co
Veggfóðursspaði - Friess
Viola Gråsten Romans - Boråstapeter
Handfang - Friess, 25cm