Kerala Tangerine – Arte
61.500 kr. rúlluverð
Á Indlandi kemur sumarið ekki hljóðlega. Það springur út með fullum krafti; heimurinn verður baðaður í gullnu ljósi, ilmandi af þroskuðum ávöxtum og hlýrri jörð, á meðan loftið glitrar af hita. Í þessu loftslagi verða þægindi að list og rétti textíllinn er meira en munaður. Hann er nauðsyn sem mýkir hitann og færir fegurð, áferð og vellíðan inn í daglegt líf. Hör hefur verið trúr förunautur í slíku loftslagi um aldir. Hann andar, kælir og er þægilegur – jafnvel í stafalogni.
Indverska ríkið Kerala var innblástur fyrir þessa heilmynd. Glæsilegar línur pálmanna við árabakkann mynda fallega myndræna heild á afslöppuðum bakgrunni með opinni höráferð. Mynstrið má endurtaka þannig að tvær eða fleiri heilmyndir hlið við hlið passa saman í eina heildarmynd. Hver mynd er 3,3 m2.
Kerala er vínilveggfóður á pappírsbaki. Það er mjög þvottþolið og auðvelt að ná af veggnum seinna meir. Athugið að mælt er með að setja límið á bakhlið veggfóðursins eða setja límið á vegginn en þá þarf að úða bakhliðina fyrst með vatni til að gera hana raka. Lesið leiðbeiningar vel eða fáið fagmann í verkið.
Í boði sem biðpöntun












Marsh Washed White - Arte
Gillis, Blue - Sandberg
Facet Fresh White - Arte
Pure Sunflower, Mole/Gold - Morris & Co
Elena, Terracotta - Sandberg
Cashmere Cobalt - Arte
Le Sisal Bark - Arte
Kalmia - Omexco
Lignes Olive - Arte
Lin Abaca - Arte
Chinoiserie Chic, Pearl - Rebel Walls
Moorland - Boråstapeter
Aquatic Life, Oxygen - Rebel Walls