Kastanjen, Garden Green – Sandberg
6.850 kr. fermetraverð
Kastanjen mynstrið er hannað af Carl Larsson (1853-1919), sem er einn þekktasti listmálari Svíþjóðar. Hann er aðallega kunnur fyrir vatnslitamyndir sína af friðsælu fjölskyldulífi og má flokka hann sem fulltrúa list- og handíðahreyfingarinnar (Arts and Crafts) þar í landi.
Kastanjen – eða kastaníutréð – er ástsælt mótíf sem Larsson tengdi oft við notalega sumarstemningu í garðinum þegar fjölskyldan sat saman við uppdúkað kaffi- og kökuborð í skuggsælu trjánna. Hér er mynstrið stækkað í heilmynd sem gefur þá blekkingu að greinarnar hangi úr loftinu og skapi meiri hæð í rýmið.
Lágmarkspöntun er 3m². Við mælum með að bæta um 5 cm við breidd og hæð því veggir eru oft skakkir.
Í boði sem biðpöntun







































Terre de Lin Rotin - Arte
Barcelona, Rust - Rebel Walls
Ravenna, Sand - Rebel Walls
Oxford, Walnut - Rebel Walls
Chinoiserie Chic, Pearl - Rebel Walls
Lin Beach - Arte
Chinoiserie Chic, Powder Beige - Rebel Walls