Kashmir Sunset – Arte
105.500 kr. rúlluverð
Á Indlandi kemur sumarið ekki hljóðlega. Það springur út með fullum krafti; heimurinn verður baðaður í gullnu ljósi, ilmandi af þroskuðum ávöxtum og hlýrri jörð, á meðan loftið glitrar af hita. Í þessu loftslagi verða þægindi að list og rétti textíllinn er meira en munaður. Hann er nauðsyn sem mýkir hitann og færir fegurð, áferð og vellíðan inn í daglegt líf. Hör hefur verið trúr förunautur í slíku loftslagi um aldir. Hann andar, kælir og er þægilegur – jafnvel í stafalogni.
Allir sem heimsækja Indland geta ekki annað en heillast af gnægð litríkra sjala sem sjást um allt. Þau voru innblásturinn að Kashmir mynstrinu. Veggfóðrið er heilmynd prentuð á vínílgrunn með áferð sem líkist jafnofnum hör. Mynstrið má endurtaka þannig að tvær eða fleiri heilmyndir hlið við hlið passa saman í eina heildarmynd. Hver mynd er 6m2.
Kashmir er vínilveggfóður á pappírsbaki. Það er mjög þvottþolið og auðvelt að ná af veggnum seinna meir. Athugið að mælt er með að setja límið á bakhlið veggfóðursins eða setja límið á vegginn en þá þarf að úða bakhliðina fyrst með vatni til að gera hana raka. Lesið leiðbeiningar vel eða fáið fagmann í verkið.
Í boði sem biðpöntun












Camago Smoke - Arte
Hanna Werning Hoppmosse - Boråstapeter
Detour Silver Linen - Arte
Frutto Proibito Print Room Blue & Magenta on Metallic Gold - Cole & Son
Lin Fantóme - Arte
Manchas Chestnut - Arte
Rainforest Squiggle - Cole & Son
Senzo Spot, Charcoal & Metallic Gold - Cole & Son
Chanderi Merigold - Arte
Lin Normandie Iceland Blue - Arte
Detour Copper Pink - Arte
Vintage Rose - Boråstapeter
Chanderi Aztec Blue - Arte
Pimpernel Sunflower/Pink - Morris & Co
Arance Blood Orange & Ink - Cole & Son
Atlas Sand - Arte
Clara, Oat - Sandberg
Leopard Walk, Linen on Soft Olive - Cole & Son
Forest Linen - Boråstapeter
Forest Friends - Boråstapeter
Ragnvi, Green - Sandberg
Antique Mirror, Gold - Cole & Son