Kalmia – Omexco
26.502 kr. lengdarmetraverð
Hjarta hönnunarlínunnar Virginia´s Garden er sjálfur efniviðurinn, þ.e. náttúrulegur sísalvefur. Sísal býr til skynjunarsamspil lífrænnar áferðar og fágunar – einstaklega fallegt og hlýlegt. Prentuðu sísalveggfóðrin í línunni vekja upp hugrenningar um draumkennda garða með stílfærðum blómum og flæðandi laufþykkni en hluti línunnar byggir á fíngerðum sísalvef sem er klipptur upp í lífræn form og síðan felldur saman í fögur mynstur.
Kalmia er veggfóður úr sísalvef og minnir á bútasaum þar sem vefurinn er klipptur í laufblaðaform og raðað aftur saman í fallega heild. Mynstrið er með fíngerðum lífrænum formum sem fer einkar vel með náttúrulegu sísaltrefjunum.
Veggfóður úr náttúrutrefjum er viðkvæmt í uppsetningu. Aldrei leyfa lími eða vatni að komast framan á veggfóðrið. Athugið að límið er sett á vegginn. Lesið leiðbeiningar vel eða fáið fagmann í verkið – sem eindregið er mælt með. Munur getur verið á lit og útliti veggfóðurs úr náttúrutrefjum eftir lotum og lengjum. Ekki er hægt að tryggja fullkomna litasamsvörun milli sýnishorns í mynsturbók og keyptrar vöru. Það er hluti af fagurfræði náttúruefnanna – fegurðin liggur í ófullkomleikanum.
Við mælum með að bæta um 5 cm við breidd og hæð í pöntun því veggir eru oft skakkir. Lágmarkspöntun er 3 m2.
Í boði sem biðpöntun





































Tree of Life, Burgundy - Sandberg
Miami, Pastel - Cole & Son
Granville Granite - Arte
Puro Toffee - Arte
Mandu Salt - Arte
R23 rósetta
Petite Fleur, Honey Citrine - Cole & Son
Kingdom of the Willow - Boråstapeter
Zen, Terracotta - Sandberg
Chanderi Urban - Arte
Lisa Larson Lejon - Boråstapeter
Tela Nude - Arte
Lin Potatoes - Arte
Elliot, Light Blue - Sandberg
Kefli - Friess, Velour 10 cm
CB500 loftalisti
Sam, Forest Green - Sandberg