Instinct – Omexco
13.532 kr. lengdarmetraverð
Intuition línan er samsett úr fjölbreyttu úrvali veggfóðurs úr náttúrutrefjum í sinni hreinustu mynd. Þær eru síðan ofnar saman í mynsturvef. Náttúrutrefjavefur býr yfir fagurfræðilega eðlislægum yfirburðum, veitir áþreifanleg notalegheit og kynnir ferska vídd í hvert rými.
Instinct úr Intuition línunni er stórglæsilegt veggfóður úr náttúrutrefjum. Það býr yfir áþreifanlegum töfrum í fallega ofnu og lágstemmdu mynstri. Instinct er úr trefjum vatnaplöntunnar dúnhamars (e. cattail) og fæst í fimm litum.
Veggfóður úr náttúrutrefjum er viðkvæmt í uppsetningu. Aldrei leyfa lími eða vatni að komast framan á veggfóðrið. Úðið bak veggfóðurs vel með vatni og leyfið því að sjúga í sig rakann a.m.k. í 20 mínútur. Athugið að límið er sett á vegginn. Lesið leiðbeiningar vel eða fáið fagmann í verkið – sem eindregið er mælt með.
Munur getur verið á lit og útliti veggfóðurs úr náttúrutrefjum eftir lotum og lengjum. Ekki er hægt að tryggja fullkomna litasamsvörun milli sýnishorns í mynsturbók og keyptrar vöru. Það er hluti af fagurfræði náttúruefnanna – fegurðin liggur í ófullkomleikanum.
Við mælum með að bæta um 5 cm við breidd og hæð í pöntun því veggir eru oft skakkir. Lágmarkspöntun er 3 m2.
Í boði sem biðpöntun

































Lin Old Mauve - Arte
Syren - Boråstapeter
Rainbow World - Rebel Walls
Sigrid - Boråstapeter
Canvas Urban - Arte
Giraffe's Stroll, Nightfall - Rebel Walls
Camago Glazed Sage - Arte
Green Wood Mist - Rebel Walls
Cuba, Green - Rebel Walls
Moln Ceiling, Misty Blue - Sandberg
Animal World, Mint - Rebel Walls
Casalian Evergreen - Arte
Elsa - Boråstaper
Selma - Boråstapeter
Chinoiserie Chic, Powder Beige - Rebel Walls
Bird & Pomegranate, Blue/Sage - Morris & Co
Pandan Bark - Arte
Vera - Boråstapeter
Efraim, Night - Rebel Walls
Soft Blush - Boråstapeter
Shimmer Brick - Arte
Värmdö - Boråstapeter
Tela Linen - Arte
Elvis - Boråstapeter
Ingrid Marie - Boråstapeter
London Houses - Rebel Walls
Nora - Boråstapeter
Canvas Ivory - Boråstapeter
Oxford, Oak - Rebel Walls
Globes Gathering, Dew - Rebel Walls