Foliage – Omexco
21.374 kr. lengdarmetraverð
Hjarta hönnunarlínunnar Virginia´s Garden er sjálfur efniviðurinn, þ.e. náttúrulegur sísalvefur. Sísal býr til skynjunarsamspil lífrænnar áferðar og fágunar – einstaklega fallegt og hlýlegt. Prentuðu sísalveggfóðrin í línunni vekja upp hugrenningar um draumkennda garða með stílfærðum blómum og flæðandi laufþykkni en hluti línunnar byggir á fíngerðum sísalvef sem er klipptur upp í lífræn form og síðan felldur saman í fögur mynstur.
Foliage er veggfóður úr sísalvef og minnir á bútasaum; vefurinn er klipptur í laufblaðaform og raðað aftur saman í lífræna heild. Litirnir spila bæði með hliðstæða tóna og djarfar andstæður.
Veggfóður úr náttúrutrefjum er viðkvæmt í uppsetningu. Aldrei leyfa lími eða vatni að komast framan á veggfóðrið. Athugið að límið er sett á vegginn. Lesið leiðbeiningar vel eða fáið fagmann í verkið – sem eindregið er mælt með. Munur getur verið á lit og útliti veggfóðurs úr náttúrutrefjum eftir lotum og lengjum. Ekki er hægt að tryggja fullkomna litasamsvörun milli sýnishorns í mynsturbók og keyptrar vöru. Það er hluti af fagurfræði náttúruefnanna – fegurðin liggur í ófullkomleikanum.
Við mælum með að bæta um 5 cm við breidd og hæð í pöntun því veggir eru oft skakkir. Lágmarks pöntun er 3 m2.
Í boði sem biðpöntun





































Matrinah, Soot on Snow - Cole & Son
Hugo Terracotta - Sandberg
Coral, Terracotta - Sandberg
Lin Normandie Linen - Arte
Mandu Wheat - Arte
Ängsflora - Boråstapeter
Lin Esmeralda - Arte
Lin Cimento - Arte
Ranold, Green - Sandberg
Miami, Pastel - Cole & Son
Lin Atlantique - Arte
Piante Indian Red - Arte
Vírbursti - Purdy
Hoopoe Leaves, Terracotta, Ochre & Ice Blue on Charcoal - Cole & Son
Zen, White - Sandberg
Rajapur - Cole & Son
Satara, Soot & Metallic Gold on Rouge - Cole & Son
Terre de Lin Alizé - Arte
Peaseblossom, Fuchsia on Oat - Cole & Son