Floraison Antique Gold – Arte
193.798 kr.
Frá 14. til 18. aldar voru kastalar og herragarðar skreyttir með stórkostlegum veggteppum. Þessi handofnu listaverk sýndu ekki aðeins goðsagnakennda atburði heldur einnig daglegt líf meðal yfirstéttarinnar. Þau færðu hlýju og liti í glæsilega salina og þjónuðu oft sem hrífandi umræðuefni fyrir gesti. Les Tapisseries er óður til þessara íburðarmiklu veggteppa. Sem framlenging af Décors & Panoramiques línunni frá Arte birtast hér tíu einstaklega vönduð veggfóður sem má ýmist kalla veggmyndir eða heilmyndir. Hver hönnun fyrir sig er innblásin af klassískum, aldagömlum veggteppum en hafa verið endurvakin og endurhugsuð með hliðsjón af sjónarmiðum samtímans.
Floraison heilmyndin, með sinn skrautlega ramma, minnir um margt á klassískt málverk. Myndin er hönnuð eftir upprunalegu veggteppi frá 18. öld, frá Aubusson héraðinu í Mið-Frakklandi, og dregur áhorfandann af nær ómótstæðilegu afli til sín. Veggmyndin, sem virðist unnin á bakgrunn úr skinni eða bókfelli undirstrikar upprunann. Floraison er heilmynd í stærðinni 200 cm x 300 cm, sem alls gera 6 m2. Hægt er að endurtaka mynstrið með því að leggja tvær eða fleiri heilmyndir hlið við hlið.
Floraison veggfóðrið er úr blöndu af pappír og gervitrefjum (non-woven) sem þenst ekki út í límingu og er auðvelt að ná af veggnum seinna meir. Athugið að mælt er með að setja límið á vegginn. Lesið leiðbeiningar vel eða fáið fagmann í verkið – sem eindregið er mælt með. Einnig má benda á myndbönd á heimasíðunni.
Í boði sem biðpöntun

Opulence Lines, Graphite - Rebel Walls
Hanna, Sandstone - Sandberg
Satara, Soot & Metallic Gold on Linen - Cole & Son
Blöð fyrir karbítsköfu - Purdy
Motas Rose Sand - Arte
Agate Crystal, Green - Rebel Walls
Balabina, Metallic Gilver - Cole & Son
La Prairie Ochre - Arte
Dreamland, Sand - Rebel Walls
Balabina, Red on Crimson - Cole & Son
Alepine Glossy Granite - Arte
Viola Gråsten Hassel - Boråstapeter
Jungle Land, Verdant - Rebel Walls
Matiz Mink - Arte
Siv Misty Blue - Sandberg
Dinosaur Mountain - Rebel Walls
Circus Horizon, Rainbow - Rebel Walls
Swaying Reed - Rebel Walls
Tela Warm Stone - Arte
Temper Lavender Grey - Arte
Motas Sepia - Arte
Carousel, Stripe Black - Cole & Son