Escapade Cinnamon – Arte
346.722 kr.
Frá 14. til 18. aldar voru kastalar og herragarðar skreyttir með stórkostlegum veggteppum. Þessi handofnu listaverk sýndu ekki aðeins goðsagnakennda atburði heldur einnig daglegt líf meðal yfirstéttarinnar. Þau færðu hlýju og liti í glæsilega salina og þjónuðu oft sem hrífandi umræðuefni fyrir gesti. Les Tapisseries er óður til þessara íburðarmiklu veggteppa. Sem framlenging af Décors & Panoramiques línunni frá Arte birtast hér tíu einstaklega vönduð veggfóður sem má ýmist kalla veggmyndir eða heilmyndir. Hver hönnun fyrir sig er innblásin af klassískum, aldagömlum veggteppum en hafa verið endurvakin og endurhugsuð með hliðsjón af sjónarmiðum samtímans.
Escapade heilmyndin er hönnuð eftir veggteppi frá síðari hluta 18. aldar. Hún minnir á draumkennt olíumáluð landslag, þar sem náttúran býður áhorfandanum að reika um og gleyma sér. Á meðan eykur flauelsmjúkur textíllinn tilfinningu fyrir lúxus og glæsileika. Escapade er heilmynd í stærðinni 390 cm x 300 cm, sem alls gera 11,7 m2. Hægt er að endurtaka mynstrið með því að leggja tvær eða fleiri heilmyndir hlið við hlið.
Escapade veggfóðrið er textíll með baki úr blöndu af pappír og gervitrefjum (non-woven) sem þenst ekki út í límingu og er auðvelt að ná af veggnum seinna meir. Athugið að mælt er með að setja límið á vegginn. Lesið leiðbeiningar vel eða fáið fagmann í verkið – sem eindregið er mælt með. Einnig má benda á myndbönd á heimasíðunni.
Í boði sem biðpöntun

Puzzle Warm White - Arte
Narina, Grey - Cole & Son
Ferns Grow - Omexco
Jon Olive Green - Sandberg
Dúkahnífur, lítill
Polka Stripe - Boråstapeter
Kefli - Purdy, Colossus 23cm
Winchester, Pearl - Rebel Walls
Peerless - Omexco
Amboise, Pearl - Rebel Walls
Woodbell & Anemone, Indigo - Morris & Co
Terre de Lin Lune de Miel - Arte
Biseau Copper Red - Arte
Floating Playful - Rebel Walls
Petite Fleur, Honey Citrine - Cole & Son
Feather Fan, Charcoal & Metallic Bronze - Cole & Son
Pushkin, Green - Cole & Son
Allium, Teal & Jade on Chalk - Cole & Son
Woodland Stripe - Boråstapeter
Tom, Misty Blue - Sandberg
Drift Glazed Sage - Arte
Weave Glazed White - Arte