Curve Crisp White – Arte
52.700 kr. lengdarmetraverð
Curve er ofið textílefni með vott af gamaldags yfirbragði en þannig efni voru einmitt afar vinsæl um miðbik 20. aldar í textíliðnaði og hjá frægum tískuhúsum, t.d. Chanel. Slík vinnsla á efnum er yfirleitt nefnd „bouclé“ sem þýðir eiginlega „hrokkinn“, en það eins og misþykkt, krullað garnið standi svolítið upp úr efninu hér og þar og myndar notalega, grófofna áferð. Við sjáum svona vefnað mikið í bólsturefnum sófa og hægindastóla í dag. Curve mynstrið sjálft er byggt upp af mjúkum hálfhringum sem eru umluktir ferningum. Þetta veggfóður hefur töluvert verið notað á rúmgafla. Litur: Hvítur.
Curve textílefnið er lagt ofan á misþykkan svamp og gefur því skemmtileg þrívíddaráhrif. Í leiðinni nást jákvæð hljóðvistaráhrif. Veggfóðrið er með baki úr blöndu af pappír og gervitrefjum (non-woven) sem þenst ekki út í límingu og er auðvelt að ná því af veggnum seinna meir. Athugið að mælt er með að setja límið beint á vegginn. Blautt/rakt lím má strjúka létt af framhliðinni með svampi við upphengingu. Lesið leiðbeiningar vel eða fáið fagmann í verkið. ATH. Þetta veggfóður er selt í lengdarmetrum, ekki stöðluðum rúllum.
Í boði sem biðpöntun

































Camago Glazed Sage - Arte
Elena, Terracotta - Sandberg
Idun Mineral Grey - Sandberg
Musa Gold Leaf - Arte
Terre de Lin Voile - Arte
Marmaris, Coral - Rebel Walls
Ruban Oak - Arte
Moln Ceiling, Misty Blue - Sandberg
Temper Fog - Arte
Spartlspaði fyrir skaft – Friess, tvíhentur 100mm
Hilltops, Graphic - Rebel Walls
Wilma Grey - Sandberg
Protea Garden, Olive & Rouge on Black - Cole & Son
Emil, Beige - Sandberg
Grow Amber - Rebel Walls
Sarana Pearl - Arte
Erik, Indigo Blue - Sandberg