Confident – Omexco
23.075 kr. lengdarmetraverð
Intuition línan er samsett úr fjölbreyttu úrvali veggfóðurs úr náttúrutrefjum í sinni hreinustu mynd. Þær eru síðan ofnar saman í mynsturvef. Náttúrutrefjavefur býr yfir fagurfræðilega eðlislægum yfirburðum, veitir áþreifanleg notalegheit og kynnir ferska vídd í hvert rými.
Confident úr Intuition línunni er stórglæsilegt veggfóður úr náttúrulegum ramívef. Ramí (einnig nefnt kínagras) er trefjavefur á borð við hör eða silki og hefur verið notaður í klæði í þúsundir ára. Hér er ramívefurinn fínofinn og fæst í þremur einstaklega fallegum litum.
Veggfóður úr náttúrutrefjum er viðkvæmt í uppsetningu. Aldrei leyfa lími eða vatni að komast framan á veggfóðrið. Athugið að límið er sett á vegginn. Lesið leiðbeiningar vel eða fáið fagmann í verkið – sem eindregið er mælt með.
Munur getur verið á lit og útliti veggfóðurs úr náttúrutrefjum eftir lotum og lengjum. Ekki er hægt að tryggja fullkomna litasamsvörun milli sýnishorns í mynsturbók og keyptrar vöru. Það er hluti af fagurfræði náttúruefnanna – fegurðin liggur í ófullkomleikanum.
Við mælum með að bæta um 5 cm við breidd og hæð í pöntun því veggir eru oft skakkir. Lágmarkspöntun er 3 m2.
Í boði sem biðpöntun

































Weave Espresso - Arte
Tamba Mushroom - Arte
Kefli - Friess, UltraFlock 10cm
C902 ljósa- og loftalisti
Stravinsky, Stone - Cole & Son
Atlas Sand - Arte
Ferns Grow - Omexco
Rajapur Flock, Hyacinth Blue & White - Cole & Son
Frida, Light Blue - Sandberg
Titania, Metallic Gold on Duck Egg - Cole & Son
Nomi - Boråstapeter