Collines Sepia – Arte
30.678 kr. lengdarmetraverð
Frá 14. til 18. aldar voru kastalar og herragarðar skreyttir með stórkostlegum veggteppum. Þessi handofnu listaverk sýndu ekki aðeins goðsagnakennda atburði heldur einnig daglegt líf meðal yfirstéttarinnar. Þau færðu hlýju og liti í glæsilega salina og þjónuðu oft sem hrífandi umræðuefni fyrir gesti. Les Tapisseries er óður til þessara íburðarmiklu veggteppa. Sem framlenging af Décors & Panoramiques línunni frá Arte birtast hér tíu einstaklega vönduð veggfóður sem má ýmist kalla veggmyndir eða heilmyndir. Hver hönnun fyrir sig er innblásin af klassískum, aldagömlum veggteppum en hafa verið endurvakin og endurhugsuð með hliðsjón af sjónarmiðum samtímans.
Collines veggklæðningin sækir innblástur til Aubusson í Mið-Frakklandi, í ekta veggteppi frá 18. öld. Abstrakt gróðurmótífið er einstaklega tímalaust, sem þýðir að það passar fullkomlega inn í nútímaleg rými en varðveitir samt sem áður sjarma sögulegs uppruna.
Collines er textíll með baki úr blöndu af pappír og gervitrefjum (non-woven) sem þenst ekki út í límingu og er auðvelt að ná því af veggnum seinna meir. Athugið að mælt er með að setja límið á vegginn. Lesið leiðbeiningar vel eða fáið fagmann í verkið – sem eindregið er mælt með. Einnig má benda á myndbönd á heimasíðunni.
Í boði sem biðpöntun

Arrow Honey - Arte
Rambling Rose Twining Vine - Morris & Co
Lin Atlantique - Arte
Oblong Mexican Sand - Arte
Arne Jacobsen Trapez - Boråstapeter
Lin Normandie Dove - Arte
Camago Smoke - Arte
Rambling Rose Emery Blue/Spring Thicket - Morris & Co
Pensill - Purdy, XL Elite Monarch 100mm
Industriel Urban Farm L.A. Vintage - Rebel Walls
Khulu Vases, Multi Greens on Pale Cream - Cole & Son
Itaya Dove Grey - Arte
Drift Glazed Sage - Arte
Limone, Yellow - Sandberg
Pensill - Friess, 50mm
Secret Garden, Forest Green on White - Cole & Son
Simon, Sandstone - Sandberg
Ebba, Green - Sandberg
Veggfóðurssvampur - Bostik Nr.3
Dove Grey - Boråstapeter