Cheetah Prowl, Bronze – Cole & Son
59.637 kr. rúlluverð
Ardmore Baobab er veggfóðurslína þar sem hönnun mætir list. Hún er hylling til hins tignarlega Baobab trés í Suður-Afríku. Það er umvafið dulspeki og goðsögnum, oft kallað „lífsins tré“. Tréð er sagt hafa lækningarmátt og er í raun tákn fyrir lífsorkuna í dýralífi og gróðurfari Suður-Afríku, enda stendur það keikt í landslaginu og allar lifandi verur laðast að því. Hönnunarhúsin Cole & Son og Ardmore Ceramics hafa enn og aftur skapað dásamlega upplifun með mynstrum sem eru hugmyndarík, glaðleg og iðandi af lífi.
Á Cheetah Prowl mynstrinu sést skrúðganga af konunglegum blettatígrum með sínar einkennandi þrjár rendur á bakinu feta sig áfram í fjaðrakenndu grasinu. Hinn viðsjáli blettatígur er hraðskreiðasta dýr í heimi en einnig eitt sjaldgæfasta og er bæði goðsagnakenndur og heillandi.
Í boði sem biðpöntun

































Animal World - Rebel Walls
Hoopoe Leaves, Denim, Forest Green & Magenta on Midnight - Cole & Son
Kalahari, Stone & Charcoal - Cole & Son
Terrain Pastel - Rebel Walls
Petite Tile, Chalk & Parchment - Cole & Son
Under the Elder Tree - Boråstapeter
Biseau Bronze Black - Arte
Mediterranea White, Black & Metallic - Cole & Son