Cesta – Omexco
13.532 kr. lengdarmetraverð
Oase-línan vekur upp hugmyndir af kyrrlátu og heimilislegu athvarfi, innblásið af sveitalegum stíl með sínum ríkulegu og náttúrulegu áferðum í jarðtónum. Þetta yfirbragð blandast klassískum hönnunarþáttum og falla óaðfinnanlega að nútímaheimilum. Í hjarta Oase hönnunarlínunnar er fagurlega útfærð pappírsfléttun sem undirstrikar ástríðu fyrir handverki og áþreifanlegri ljóðlist. Lífrænn útsaumur, fínleg innfelld mynstur og stórfengleg heilmyndahönnun sýna fjölhæfni pappírsfléttunnar og lyfta upp eðlislægri fegurð náttúrulegra hráefna.
Cesta pappírsvefurinn er gerður úr náttúrutrefjum og eru þræðirnir litaðir með vægri litaóreglu sem minnir á náttúrulegan ófullkomleika. Litapallettan birtist í hlýjum jarðtónum sem endurspegla fegurðina í lífrænum einfaldleika.
Veggfóður úr náttúrutrefjum er viðkvæmt í uppsetningu. Aldrei leyfa lími eða vatni að komast framan á veggfóðrið. Fyrir samfelldara útlit er mælt með að líma lengjurnar til skiptis upp og niður (önnur hver lengja er sett á hvolf miðað við lengjuna á undan). Athugið að límið er sett á vegginn. Lesið leiðbeiningar vel eða fáið fagmann í verkið – sem eindregið er mælt með. Munur getur verið á lit og útliti veggfóðurs úr náttúrutrefjum eftir lotum og lengjum. Ekki er hægt að tryggja fullkomna litasamsvörun milli sýnishorns í mynsturbók og keyptrar vöru. Það er hluti af fagurfræði náttúruefnanna – fegurðin liggur í ófullkomleikanum.
Við mælum með að bæta um 5 cm við breidd og hæð í pöntun því veggir eru oft skakkir. Lágmarkspöntun er 3 m2.
Í boði sem biðpöntun



























Tasar Silver Sand - Arte
Shards Clay - Arte
True Punk Stripe - Cole & Son
Beata Graphite - Sandberg
Sophia - Boråstapeter
Värmdö - Boråstapeter
Matrinah, Metallic Gold & Charcoal on Old Olive - Cole & Son
Cube - Boråstapeter
Stars, Metallic Gold on Ice Blue - Cole & Son
Little Fox - Boråstapeter
Campo Smokey Blue - Arte
Soft Jade - Boråstapeter
Khulu Vases, Multi Greens on Pale Cream - Cole & Son
Arboretet, Dark Green - Sandberg
Puro White Smoke - Arte
Granville Bottle Green - Arte
Campo Sandstone - Arte
Woods, Metallic Gilver on Ballet Slipper - Cole & Son
Giselle Mica, Plaster Pink - Cole & Son
Sage Green - Boråstapeter
Änggården - Boråstapeter
Arne Jacobsen Ypsilon - Boråstapeter