Canvas Chimney – Arte
45.900 kr. rúlluverð
Canvas er innblásið af áferð hörs á fallegan og tímalausan hátt. Ofið mynstrið og einstaklega mött áferðin sýnir greinilega einkennandi uppbyggingu ekta hörvefnaðar. Canvas kemur í 12 náttúrulitum. Þessi útgáfa er í koksgráu.
Þetta veggfóður má hengja upp á tvo vegu: Annars vegar frjálst og hins vegar þannig að þræðirnir í mynstrinu passa saman þvert á veggfóðurslengjurnar á veggnum. Ef hið seinna er valið þá þarf að gera ráð fyrir því aukalega við pöntun en mynstur endurtekur sig á 90 cm fresti. Það verður því aðeins meiri afskurður með þeirri aðferð.
Canvas er vínilveggfóður á pappírsbaki. Veggfóðrið er mjög þvottþolið og auðvelt að ná því af veggnum seinna meir. Athugið að mælt er með að setja límið á bakhlið veggfóðurs, ekki beint á vegginn. Þrífið límbletti af með hreinu vatni og mjúkum svampi ÁÐUR en límið þornar. Lesið leiðbeiningar vel eða fáið fagmann í verkið.
Í boði sem biðpöntun






















































































































Tulle Grey Blue - Arte
Nelson Chilli - Arte
Mandu Sage - Arte
Mandu Salt - Arte
Sam, Honey - Sandberg
Columbus, Metallic Gilver & Soot - Cole & Son
Optique Rubis - Arte
Scandinavian Beige - Boråstapeter
Hræra fyrir borvél - Mako, 120mm
Ranold, Beige - Sandberg
CX217-2600 ljósa- og gluggatjaldalisti
Nelson Papyrus - Arte