Bundi Nutmeg – Arte
41.200 kr. rúlluverð
Á Indlandi kemur sumarið ekki hljóðlega. Það springur út með fullum krafti; heimurinn verður baðaður í gullnu ljósi, ilmandi af þroskuðum ávöxtum og hlýrri jörð, á meðan loftið glitrar af hita. Í þessu loftslagi verða þægindi að list og rétti textíllinn er meira en munaður. Hann er nauðsyn sem mýkir hitann og færir fegurð, áferð og vellíðan inn í daglegt líf. Hör hefur verið trúr förunautur í slíku loftslagi um aldir. Hann andar, kælir og er þægilegur – jafnvel í stafalogni.
Bundi er einföld hönnun sem býður upp á einstaklega raunsæja túlkun á tímalausu hörefni, með afar mattri áferð. Reglulegur vefnaðurinn skapar róandi áhrif. Bundi veggfóðrið er nefnt eftir heillandi indverskum bæ og fæst í ríkulegu litavali af hlýlegum, náttúrulegum litum.
Bundi er vínilveggfóður á pappírsbaki. Það er mjög þvottþolið og auðvelt að ná af veggnum seinna meir. Athugið að mælt er með að setja límið á bakhlið veggfóðursins eða setja límið á vegginn en þá þarf að úða bakhliðina fyrst með vatni til að gera hana raka. Lesið leiðbeiningar vel eða fáið fagmann í verkið.
Í boði sem biðpöntun












Lignes Olive - Arte
Veggfóðursbursti - Friess, 30 cm
Piante Cream - Arte
Bladverk Garden Green - Sandberg
Summer Lily - Cole & Son
Arrow Gravel - Arte
Eri Pearl - Arte
Evelina Indigo Blue - Sandberg
Hummingbirds, Viridian - Cole & Son
Montagna Petal - Arte
Shards Smoke - Arte
Lin Cimento - Arte
Canterbury - Omexco
Cocktails Soot & Snow - Cole & Son
Charlie - Boråstapeter
Helena - Boråstapeter