Bucolique Winter Walk – Arte
418.986 kr.
Frá 14. til 18. aldar voru kastalar og herragarðar skreyttir með stórkostlegum veggteppum. Þessi handofnu listaverk sýndu ekki aðeins goðsagnakennda atburði heldur einnig daglegt líf meðal yfirstéttarinnar. Þau færðu hlýju og liti í glæsilega salina og þjónuðu oft sem hrífandi umræðuefni fyrir gesti. Les Tapisseries er óður til þessara íburðarmiklu veggteppa. Sem framlenging af Décors & Panoramiques línunni frá Arte birtast hér tíu einstaklega vönduð veggfóður sem má ýmist kalla veggmyndir eða heilmyndir. Hver hönnun fyrir sig er innblásin af klassískum, aldagömlum veggteppum en hafa verið endurvakin og endurhugsuð með hliðsjón af sjónarmiðum samtímans.
Bucolique er hannað eftir veggteppi frá 17. öld og sýnir friðsælt landslag með tveimur tignarlegum svönum í forgrunni. Þessi mikla heilmynd er sett fram á textíl með ríkulegri áferð, sem gefur henni áþreifanlega nærveru og dýpt eins og á ekta veggteppi. Bucolique er heilmynd í stærðinni 480 cm x 300 cm, sem alls gera 14,4 m2. Hægt er að endurtaka mynstrið með því að leggja tvær eða fleiri heilmyndir hlið við hlið.
Bucolique veggfóðrið er textíll með baki úr blöndu af pappír og gervitrefjum (non-woven) sem þenst ekki út í límingu og er auðvelt að ná af veggnum seinna meir. Athugið að mælt er með að setja límið á vegginn. Lesið leiðbeiningar vel eða fáið fagmann í verkið – sem eindregið er mælt með. Einnig má benda á myndbönd á heimasíðunni.
Í boði sem biðpöntun

Granville Tangerine - Arte
Éclat Rust - Arte
Marble Art, Sand - Rebel Walls
Antonia, Pink - Sandberg
Savanna Shell, Ochre, Soot & Orange - Cole & Son
Safari Totem, Terracotta & Forest Green on Stone - Cole & Son
Pensill - Purdy, XL Elite Sprig 50mm
Marsh Pine Grey - Arte
Lush Foliage, Sage Tint - Rebel Walls
Canterbury - Omexco
Spegel, Indigo Blue - Sandberg
Pensill - Anza, Super Effective Flat 35mm
Tunis, Saffron - Rebel Walls
Chanderi Almond - Arte
Einar Spring Green - Sandberg
Magnus, Clay - Sandberg
Bush Baby, Spring Green & Orange on Black - Cole & Son
Pallamoppa - Anza
Soft Bricks, Pink - Rebel Walls
Singita, Viridian Multi - Cole & Son