Brocade Amber – Arte
49.500 kr. lengdarmetraverð
Frá 14. til 18. aldar voru kastalar og herragarðar skreyttir með stórkostlegum veggteppum. Þessi handofnu listaverk sýndu ekki aðeins goðsagnakennda atburði heldur einnig daglegt líf meðal yfirstéttarinnar. Þau færðu hlýju og liti í glæsilega salina og þjónuðu oft sem hrífandi umræðuefni fyrir gesti. Les Tapisseries er óður til þessara íburðarmiklu veggteppa. Sem framlenging af Décors & Panoramiques línunni frá Arte birtast hér tíu einstaklega vönduð veggfóður sem má ýmist kalla veggmyndir eða heilmyndir. Hver hönnun fyrir sig er innblásin af klassískum, aldagömlum veggteppum en hafa verið endurvakin og endurhugsuð með hliðsjón af sjónarmiðum samtímans.
Brocade veggklæðningin er unnin upp úr textílmynstri frá fyrri hluta 20. aldar. Fágað myndefnið, með öllum sínum smáatriðum og ríkulegri áferð, er endurvakið á íofnu lúxus jacquard-efni og varðveitir þannig mikilfengleika og fegurð upprunalega mynstursins.
Brocade veggfóðrið er textíll með baki úr blöndu af pappír og gervitrefjum (non-woven) sem þenst ekki út í límingu og er auðvelt að ná því af veggnum seinna meir. Athugið að mælt er með að setja límið á vegginn. Lesið leiðbeiningar vel eða fáið fagmann í verkið – sem eindregið er mælt með. Einnig má benda á myndbönd á heimasíðunni.
Í boði sem biðpöntun

Jasmine, Charcoal - Sandberg
Harry, Forest Green - Sandberg
Turi Gramstad Oliver Daisy - Boråstapeter
Weave Deep Sea - Arte
Rajapur - Cole & Son
Franges Marigold - Arte
Lignes Washed White - Arte
Palm Jungle - Cole & Son
Cuadro Greige - Arte
Chiavi Segrete Metallic Gilver & Metallic Gold - Cole & Son
Puro Toffee - Arte
Éclat Antique Gold - Arte
Flamingos - Cole & Son
Sabal Canyon - Arte
Sléttispaði - Friess, 350x110mm
Pompeian - Cole&Son