Bakteríudrepandi málning
Alpha Sanocryl
Alpha Sanocryl er mött, vatnsþynnanleg akrýlmálning með virkum silfurjónum, sérhönnuð til að vinna gegn bakteríum, t.d. E.coli og ónæmum Staphylococcus aureus (MRSA/Mósa). Silfurjónirnar eru ekki skaðlegar heilsu manna en virkni þeirra er sérhæfð við það að bakteríur geta ekki fjölgað sér á yfirborði málningarinnar og drepast því á mjög skömmum tíma. Bakteríueyðandi virkni Alpha Sanocryl eykst við þvott og skrúbbun og hún heldur virkninni alveg jafnvel eftir endurtekinn þvott. Virkni silfurjónanna kemur jafnframt í veg fyrir að mygla þrífist í málningarfilmunni. Blóð, Iso-betadine og önnur sótthreinsiefni skilja ekki eftir sig bletti eftir hreinsun og eru einangruð eftir endurmálun. Auðvelt er að mála með Alpha Sanocryl og hún þekur sérlega vel. Hún hefur langan opnunartíma, er auðveld í viðhaldi og þolir þrif afar vel – uppfyllir hæsta staðal í þvottheldni og rispuþoli. Alpha Sanocryl er lyktarlítil, hraðþornandi og hefur fallega og jafna áferð.
Alpha Sanocryl hentar á loft og veggi úr gifsi og steypu, á spartlaða fleti og glertrefjaefni. Mælt er með henni á húsnæði fyrir heilsugæsluþjónustu, opinberar byggingar og víðar þar sem óskað er eftir góðu hreinlæti og draga þarf úr sýkingarhættu. Alpha Sanocryl hentar jafnt við nýmálun sem á áður málaða fleti.

















Stillness - Rebel Walls
Alice's Garden, Dusk - Rebel Walls
Kefli - Purdy, White Dove 30cm
Planetarium, Sand - Rebel Walls
Harlow, Marble - Rebel Walls
Gocken Jobs Stugrabatt - Boråstapeter
Tamba Graphite - Arte
Turtledove Barn Charcoal - Sandberg
Globes Gathering, Dew - Rebel Walls
Unicorn Dream, Bubblegum - Rebel Walls
Bloomy Fields of Marion, Grey Green - Rebel Walls
Blöð fyrir glersköfu - Allway, 10cm 5 stk
Strelitzia Jute - Arte
Wilton, Confetti - Sandberg
Tree of Life, Burgundy - Sandberg