Amulet Sand – Arte
44.728 kr. rúlluverð
Uppgötvun grafar Tútankamons í Konungadalnum í Egyptalandi, með gnægð fagurlega skreyttra muna og húsgagna, lék lykilhlutverk í að móta fagurfræði þriðja áratugarins. Luxor línan sækir innblástur í þetta líflega tímabil. Geómetrísk hönnunin er hlýleg hylling til Art Deco og egypskra áhrifa, með endurtúlkun á innfelldum vefnaði í náttúrulegum efnum; notuð er nýjasta prenttækni og litapallettan sömuleiðis náttúruleg. Bæði útlit og áferð eru einstaklega nákvæm og raunveruleg, á meðan ríkulega sviðsett heilmynd fullkomnar hönnunarlínuna.
Art Deco skapaði ekki aðeins áhugaverða innanhússhönnun og byggingarlist heldur einnig lúxus skartgripi. Glæsileg hönnun Amulet veggfóðursins er innblásin af formum slíkra gripa.
Amulet er veggfóður með baki sem gert er úr blöndu af pappír og gervitrefjum (non-woven) sem þenst ekki út í límingu og er auðvelt að ná því af veggnum seinna meir. Athugið að mælt er með að setja límið á vegginn. Lesið leiðbeiningar vel eða fáið fagmann í verkið. Einnig má benda á myndbönd á heimasíðunni.
Í boði sem biðpöntun
Emery’s Willow Citrus Stone - Morris & Co
Bladverk Gray - Sandberg
Terre de Lin Saint Barth - Arte
Hedda, Sandstone - Sandberg
Pensill - Purdy, XL Elite Sprig 38mm
Morängen Hazel - Sandberg
Puzzle Orange Ruby - Arte
SX162 alhliða listi
Hraðþornandi spartl 450ml
Lin Normandie Corde - Arte
Foliage - Omexco
Canvas Dew - Arte