Alepine Silver – Arte
17.877 kr. lengdarmetraverð
Tímalaus lúxus fyrir fágaða uppreisnarmenn: Hvert einasta veggfóður í Metal X Patina línunni er prentað á málmþynnu til að skapa listrænt, veðrað múrútlit á veggi. Mynstrin eru innblásin af gömlum málningaraðferðum eða handverki. Beitt var háþróaðri prenttækni sem sameinar matt útlit með gljáandi svæðum hér og þar til að skapa líflega og náttúrulega patínu.
Þetta mynstur dregur nafn sitt af samnefndu, ofurléttu skilkiefni, Alepine. Það einkennist af fallegri samsetningu af breiðum, rifnum og samliggjandi ræmum úr textíl sem hafa verið þaktar þunnu lagi af gifshúð. Sérstakt og óhefðbundið útlit hönnunarinnar er undirstrikað með málmþynnunni.
Alepine er veggfóður með baki úr blöndu af pappír og gervitrefjum (non-woven) sem þenst ekki út í límingu og er auðvelt að ná af veggnum seinna meir. Athugið að límið er sett á vegginn. Lesið leiðbeiningar vel eða fáið fagmann í verkið – sem eindregið er mælt með.
Í boði sem biðpöntun












Eri Copper - Arte
Symbol Elephant - Arte
Angel's Trumpet - Cole & Son
Ruban Oak - Arte
Ardmore Border, Soft Olive - Cole & Son
Raphael Sky Blue - Sandberg
Elliot, Light Blue - Sandberg
Lin Normandie Forest - Arte
Chiavi Segrete Olive - Cole & Son
Pandan Bark - Arte
Marigold, Wedgwood - Morris & Co
Pensill - Purdy, XL Elite Sprig 50mm
Lin Vert de Gris - Arte
Detour Copper Pink - Arte