Afrika Damask, Sandstone & Ruby – Cole & Son
59.637 kr. rúlluverð
Ardmore Baobab er veggfóðurslína þar sem hönnun mætir list. Hún er hylling til hins tignarlega Baobab trés í Suður-Afríku. Það er umvafið dulspeki og goðsögnum, oft kallað „lífsins tré“. Tréð er sagt hafa lækningarmátt og er í raun tákn fyrir lífsorkuna í dýralífi og gróðurfari Suður-Afríku, enda stendur það keikt í landslaginu og allar lifandi verur laðast að því. Hönnunarhúsin Cole & Son og Ardmore Ceramics hafa enn og aftur skapað dásamlega upplifun með mynstrum sem eru hugmyndarík, glaðleg og iðandi af lífi.
Lífrænt Afrika Damask mynstrið var upprunalega málað á verk úr keramík frá Ardmore. Þessi nýja útgáfa gefur veggfóðrinu upphafna fegurð og passar vel við aðra Baobab hönnun.
Í boði sem biðpöntun

































Sibylla - Boråstapeter
Etched Scrolling Tulip, Faded Indigo - Morris & Co
Stella - Boråstapeter
Frida, Olive Green - Sandberg
Daisy & Oak, Powder Blue/Blush - Morris & Co
Tullgarn - Boråstapeter
Ängsflora - Boråstapeter
Forest Friends - Boråstapeter