Affinity – Omexco
23.075 kr. lengdarmetraverð
Intuition línan er samsett úr fjölbreyttu úrvali veggfóðurs úr náttúrutrefjum í sinni hreinustu mynd. Þær eru síðan ofnar saman í mynsturvef. Náttúrutrefjavefur býr fagurfræðilega yfir eðlislægum yfirburðum, veitir áþreifanleg notalegheit og kynnir ferska vídd í hvert rými.
Affinity úr Intuition línunni er stórglæsilegt veggfóður úr náttúrutrefjum. Það býr yfir áþreifanlegum töfrum í fallega ofnu ferningamynstri. Affinity er úr cattail trefjum sem eru síðan vandlega handmálaðar í þremur litum.
Veggfóður úr náttúrutrefjum er viðkvæmt í uppsetningu. Aldrei leyfa lími eða vatni að komast framan á veggfóðrið. Spreyið bak veggfóðurs vel með vatni og leyfið því að sjúga í sig rakann a.m.k. í 20 mínútur. Athugið að límið er sett á vegginn. Lesið leiðbeiningar vel eða fáið fagmann í verkið – sem eindregið er mælt með.
Munur getur verið á lit og útliti veggfóðurs úr náttúrutrefjum eftir lotum og lengjum. Ekki er hægt að tryggja fullkomna litasamsvörun milli sýnishorns í mynsturbók og keyptrar vöru. Það er hluti af fagurfræði náttúruefnanna – fegurðin liggur í ófullkomleikanum.
Við mælum með að bæta um 5 cm við breidd og hæð í pöntun því veggir eru oft skakkir. Lágmarkspöntun er 3 m2.
Í boði sem biðpöntun

































Anemone - Boråstapeter
Kim - Boråstapeter
Gustaf - Boråstapeter
Ängsblomma - Boråstapeter
Sam - Boråstapeter
Isidor - Boråstapeter
Polarn - Boråstapeter
R22 rósetta
Meadow, Metallic Bronze & Soot - Cole & Son
Blomsterfröjd - Boråstapeter
Helena - Boråstapeter
Fredrika - Boråstapeter
Fenix - Boråstapeter
Vallmo - Boråstapeter
Vintage Wood - Boråstapeter
Fredrika - Boråstapeter
Straw Linen - Boråstapeter
Chiavi Segrete Parchment & Metallic Gold - Cole & Son
Folklore - Boråstapeter